Fjölskylda
Við Iðunn giftum okkur 6. maí 1983
og eigum 3 syni, Andrés Helga (1983), Guðjón Heiðar (1985) og Viktor Orra (1989).
Foreldrar voru Polly Sæmundsdóttir (1917-2008) og Guðjón Kristinsson (1920-1998),
systkini Eygló (heimasíða)(1946) og Kristinn (1947) - með Rakel á myndinni.
Foreldrar Iðunnar eru Magnús Pálsson og Sylvía Briem og systkini hennar eru Helgi Briem, Páll Briem og Sæunn Sylvía
Magnúsdóttir.
Skóli og vinna
Kópavogsskóli 1966-1972, Víghólaskóli 1972-1975, stúdent frá MK 1979, tölvunarfræðinám við HÍ 1979-1981.
Sumarstörfin, með skóla, voru hjá Útvegsbankanum, Málningu og Bílalökkuninni 1977-1982.
Vann hjá VKS 1983-1992, sjálfstætt 1993-1996, hjá Kuggi 1997-2006, seinni hlutar árs 2006 hjá Símanum, hjá Anza frá
ársbyrjun 2007, aftur til Símans í júlí 2007 og svo til Staka í ágúst 2008.
|
Tónlist
Meðlimur Fræbbblanna 1978-1983 og frá 1996.
Þess á milli með:
-
mamma var rússi frá 1986-1987 með Stefáni, Árna Daníel, Arnóri, Tryggva, Þorsteini, Iðunni, Brynju og
Kristínu.
-
Fitlarinn á bakinu 1983 með Baldri, Helga, Kára og Tryggva.
-
Dónar svo bláir 1989 með Stefáni, Arnóri og Kidda 1989-1989.
-
Glottt frá 1988-1996 með Stefáni, Ellert, Arnóri, Kristni, Tryggva, Iðunni, Hjördísi, Brynju og
Kristínu.
Önnur áhugamál
Í matar- og vín félagskapnum Goûtons voir frá upphafi.
Meðlimur Sambindisins frá upphafi, 1983.
.. og fótboltahópsins Postulanna frá upphafi, 1998.
Er í taflfélaginu "Bridsfjelagið", en var áður í Hróknum þegar við unnum fjórðu deildina og tefldi tvisvar fyrir TR í
deildakeppninni og einu sinni fyrir Hauka, skákstigin eru 1610. En "Jólamót Jonna" hefur verið haldið frá 1993, úrslitin
eru hér.
Bridgefélag svo sem ekkert og aðeins eitt gullstig, en "Áramót Iðunnar" hefur
verið haldið síðustu ár.
Meðlimur í Siðmennt og Vantrú frá 2008.
Yngri flokkar Breiðabliks í fótbolta, 4. og 3. flokkur sem vann Íslandsmótið 1975.
Í stjórn og meistaraflokksráði knattspyrnudeildar Breiðabliks 1993-1996.
Í Golfklúbbi Bakkakots 1992-1994 og 2004-.... forgjöfin ekki gefin upp að sinni.
Kvikmyndir
Aðstoðarleikstjóri við Óðal feðranna.
Lék í myndum Hrafns Gunnlaugssonar, "Okkar á milli í hita og þunga dagsins" og "Hrafninn Flýgur".
Kom (óhjákvæmilega) fram í "Rokk í Reykjavík" og "Pönkið og Fræbbblarnir"
|
Eitt og annað
Held úti bloggsíðu á Eyjunni og er með Facebook síðu, er að reyna að komast af stað með Twitter. Svo má finna eldri fréttir og myndir.
|
|
15. janúar 2012
|
Tengdamamma, Sylvía Briem, sjötug á þriðjudag. Ótrúlegt. Vona að við Iðunn verðum svona ung og hress þegar,
og ef, þar að kemur. En flott veisla fyrir fjölskylduna, ekki vond að fá "pot-luck" þegar fjölskyldan
hittist.
|
|
13. janúar 2012
|
Vinnustaðapartý hjá Iðunni hér heima. Fullt af skemmtilegu fólki í heimsókn og afleiðinging stórskemmtilegt
partý. Þurfti að sinna Viktori þegar leið á kvöldið, sem var að glíma við bankarugl, og ákvað að láta seinni
hlutann liggja á milli hluta, enda mikill dagns hafinn undir frekar lítið spennandi tónlist.
|
|
12. janúar 2012
|
Prófuðum að mæta í Karate tíma hjá Breiðabliki.
|
|
8. janúar 2012
|
Matur hjá Brynju og Kalla. Ekki að spyrja að eldamennskunni á þeim bænum. Að mestu leyti gamaldags
lambahryggur en einhver heimasmíðuð handtök sem gerðu þetta einstaklega vel heppnað.
|
|
7. janúar 2012
|
Sambindisfundur hjá Hadda í hádeginu, Borgarfjarðarferð skipulögð.
Postula uppskeruhátíð hjá Þórhalli, byrjuðum á póker um fjögur leytið. Fínn matur, óvenju lítið þrasað um
reglugerðar breytingar, hringurinn á rólegu nótunum og svo meiri póker. Lét ekki tilleiðast að fara í bæinn á
eftir, enda klukkan orðin hálf fjögur.
|
|
6. janúar 2012
|
Kíktum í Bridge til Sæma og spiluðum við þá Guðlaug. Kannski við stöndum við gefin loforð að spila meira á
árinu.
|
|
2. janúar 2012
|
Fyrsti dagur í fótbolta á nýju ári.
|
|
1. janúar 2012
|
Letidagur. Svínabógur. Ofninn bilaður. Út að grilla.
|
|
31. desember 2011
|
Fastir liðir eins og venjulega á gamlárskvöld, matur hjá tengdafjölskyldunni í Austurbrún. Þetta var
óvenjufjölmennt kvöld, Palla og Sæunnarfjölskyldur mættu báðar og að sjálfsögðu Hafsteinn, Jóna, Bjarni og
Hafdís - Þóra mætti svo þegar leið á kvöldið.
|
|
30. desember 2011
|
Áramót Iðunnar að venju daginn fyrir gamlársdag. Þetta er hefðbundið bridgemót og að þessu sinni mættu 10
pör. Alltaf skemmtileg stemming enda mæta flestir gestanna með eitthvert snarl. Ekki spillti að við Iðunn
unnum mótið, hvernig sem það má nú vera.
|
|
29. desember 2011
|
GoutonsVoir matarklúbburinn hittist hjá Auði & Steina. Ákveðið að hafa léttari veitingar en oftast áður
eftir allt jóla átið. En ostrur, hreindýrapaté, tvíreykt kindainnralæri, kavíar, . Og svo frábær fiskisúpa
hjá Steina. Að venju. Smökkuðum Octomore Whisky og sátum fram eftir, aldrei þessu vant, bara orðin nokkuð
drukkin. Rifjuðum upp eðal tónlist fram eftir nóttu.
|
|
27. desember 2011
|
Árlegu jólamóti Jonna í skák frestað vegna veikinda og fjarveru nokkurra fastagesta.
|
|
26. desember 2011
|
Jólaveisla með tengdafjölskyldunni í Austurbrún, pörusteik og bridge eitthvað fram eftir kvöldi.
|
|
25. desember 2011
|
Jólaveisla hjá minni fjölskyldu í Kaldaselinu, hangikjöt í aðalhlutverki og keppnin milli Einifells og
sauðakjötins að norðan hnífjöfn. Spiluðum svo eitthvað fram eftir kvöldi.
|
|
24. desember 2011
|
Hefðbundinn jólagrautur, nema hvað mandlan fannst ekki og sagan af Jonna var ekki rifjuð upp. Graflax,
kalkúnn og hnetusteik í kvöldmat. Það er af sem áður var að strákarnir gátu ekki beðið eftir að opna pakkana,
nú voru svo miklar umræður í gangi að við foreldrarnir þurftum nánast að reka þá til að sinna gjöfunum.
|
|
23. desember 2011
|
Árleg skötuveisla hjá Öggu & Magga, frændfólk frá Dalvík mætti, Kiddi & Herdís og fjölskylda. Ég lét
skötuna vera af gömlum vana enda saltfiskurinn frábær. Smá bæjarrölt og svo aftur í Þverholtið í kaffi,
smákökur og líkjör.
|
|
17. desember 2011
|
Árlegt jólamatarboð - í þetta sinn hjá Kristínu. Sólarhring seinna er ég enn pakksaddur eftir ótrúlega
matarveislu. Hverjum datt eiginlega í hug að vera að standa í svona rétt fyrir jól?
|
|
15. desember 2011
|
Hljómleikar á Dillon, sennilega þeir slökustu í langan tíma. Tókum samt nokkur lög af Namminu sem við höfum
ekki spilað lengi og svo nokkur glæný lög.
|
|
12. desember 2011
|
Síðasti postula tíminn í fótboltanum, Sævar "stal" þessu með rosalegum lokaspretti af gömlum vana. Stuttur
póker á eftir.
|
|
11. desember 2011
|
Laufabrauðsgerð hjá Gunnu & Kidda - ekki verra að enda daginn á frábærri mexíkó súpu - sem afmælisbarnið
Marissa vildi nú ekki kannast við frá Mexíkó.
|
|
10. desember 2011
|
Afmæli hjá Önnu-Lind, Skúla tókst að halda þessu leyndu allan ótrúlega lengi en eitthvað veður fékk hún af
fyrirætlunum síðasta daginn. Við næstum því Fræbbblar spiluðum nokkur lög, Steini leysti Helga af hólmi,
Retro Stefson og Jakob Frímann spiluðu líka - en verulega skemmtilegt afmæli, eins og við var að búast.
|
|
9. desember 2011
|
Guðrún Odds og Margrét kíktu í heimsókn við afmælisundirbúning.
|
|
2.-4. desember 2011
|
Einifellsferð. Alltaf frábært að koma þarna. Auður, Steini og Elín mættu okkur með kyndlum í snjónum á
föstudagskvöldið. Fiskisúpa á föstudagskvöldið, sennilega sú besta. Vélsleði á laugardeginum, gaman að sjá
Einifellið frá þessu sjónarhorni. Halli & Steinunn kíktu við seinni partinn. En aðal "verkefni"
ferðarinnnar var að halda gangandi reyknum á kjötinu sem Auður & Steini eru reykja - eða réttara sagt
horfa á Steina halda honum gangandi.
|
|
1. desember 2011
|
Hljómleikar með Halla Reynis á Rosenberg, mjög skemmtilegir og nýja efnið hljómar vel.
|
|
30. nóvember 2011
|
Andrés Helgi tapaði meiðyrðamáli í héraðsdómi, fáránleg niðurstaða.
|
|
27. nóvember 2011
|
Jólalag Fræbbblanna, "Ótrúleg jól", kom út.
|
|
26. nóvember 2011
|
Jólamatur Sambindisins, líbönsk matargerð, verulega skemmtilegur og góður matur. Spurningaleikur að hætti
Tómasar og setið að sumbli fram eftir.
|
|
25. nóvember 2011
|
Útgáfupartí hjá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni í tilefni "Íslenskir kommúnistar".
Jólahlaðborð Staka. Hafliði mætti með freyðivínskynningu og forréttirnir voru fínir, annars frekar slakt
veisluborð.
|
|
20. nóvember 2011
|
Jonni & Marissa kíktu í mat og svo mættu Brynja og Kristín í "meðferð".
|
|
19. nóvember 2011
|
Póker með postulunum á Kojak. Vann tvö mót af þremur, sátum svo að sumbli eitthvað fram eftir.
|
|
18. nóvember 2011
|
Kveðjupartí Mílu sem eru að fara að flytja úr Stórhöfðanum. Skemmtilegt kvöld og nóg af veitingum, við Andrés
(ekki Helgi) fórum samt á miðju kvöldi yfir á SPOT að horfa á Gunnar Jónsson keppa um að vera fyndnasti maður
Íslands. Hann var það svo sem í okkar huga, en þriðji að mati nefndarinnar.
|
|
17. nóvember 2011
|
Kláraði fyrsta jólalag í sögu Fræbbblanna með upptöku meistaranum Friðriki Helgasyni. Allra handa
snillingurinn Gunnar Jónsson spilar á bjöllur sem gestur.
|
|
12. nóvember 2011
|
Matur hjá Helga & Þóru, gaman að hitta Árna & Ástríði og Buggu & Erp (aftur). Skemmtilegt kvöld
og ekki þarf að kvarta undan matnum í Mávahlíðinni frekar en áður..
|
|
11. nóvember 2011
|
Whisky smökkun hjá Staka þar sem Bruichladdich var í aðalhlutverki. Gaman að prófa allar þessar tegundir og
sú síðasta, Octomore, alveg ný vídd í Whisky smökkun.
Fræbbblar spiluðu svo um kvöldið í tilefni ellefta ellefta ellefu á Bar 11 klukkan ellefu með Örför og Morgan
Kane.
|
|
5. nóvember 2011
|
Löng leikhúsferð með Assa & Stínu og Auði & Steina. Rúna mætti með okkur í smá rölt upp í áttina að
Esjunni, síðan ekta alvöru gufa í boði Assa á Mógilsá, með bjór, vindlum, salati og grilluðum pylsum frá
Kjötpól.
Þaðan lá leiðin í Borgarleikhúsið á "Nei, ráðherra". Kannski er þetta ellimerki - Stína vildi meina að þetta
væri dæmi um reynslu - en flestir brandararnir mjög svo fyrirsjáanlegir. En svo sem ekkert leiðinleg sýning.
Eftir þetta duttum við á Forréttabarinn hjá Gumma. Rosalega er það vel heppnaður veitingastaður. Sátum þar
fram eftir, ætluðum á smá röl eftir lokun en urðum hálfpartinn úti í grenjandi rigningu, duttum í Guinness á
Dubliner en Assi dró okkur svo heim í þurrk við arineld.
|
|
29. október 2011
|
Agga, Maggi, Kiddi, Sævar, Agga og Viðar komu í mat, einhvers konar mini heimatilbúinn fiskidagur til að bæta
upp fyrir fjarveruna í sumar. Skemmtilegt og vel heppnað kvöld eins og til stóð.
|
|
28. október 2011
|
Með The Validators á Faktorý. Gekk held ég bara nokkuð vel, Taugadeildin flott og FiveBellies jafn
skemmtilegir og alltaf. Og ekki spillti stór skemmtileg Validators.
|
|
26. október 2011
|
Spiluðum nokkur lög á 25 ára afmæli Krýsuvíkursamtakanna, Assi komst reyndar ekki en Rikki hljóp í skarðið.
|
|
21-22. október 2011
|
Punk 2011 hátíðin, rosalega skemmtileg hátíð með haug af stórskemmtilegum hljómsveitum.
|
|
14-16. október 2011
|
Sambindisferð í Úthlíð. Sérstaklega vel heppnuð ferð, fínn bústaður með gufu og heitum potti. Gaman að kíkja
við á Gljúfrasteini á leiðinni. Litum svo á Liverpool - Man Utd í þjónustumiðstöðinni, gaman að hitta
Hjördísi & Þorstein.
|
|
11. október 2011
|
Við Fræbbblar kláruðum að taka upp og mixa lagið Immortal, fer í spilun í næstu viku.
|
|
8-10. október 2011
|
Vinnuverð til Oslóar, mætti degi fyrr til að ná smá borgarskoðun með Alla, og styrkja norsku barina. Fórum á
Leningrad Cowboys á laugardagskvöldinu en ekki mjög gaman. En Ölfestival og pöbbarölt á laugardeginum,
indverskur á laugardagskvöld og ítalskur veitingastaður á sunnudagskvöld. Og nóg af bjór. En verðlagið, eða
réttara sagt, gengið á norsku krónunni.
|
|
29. september 2011
|
Fyrsta leiksýning vetrarins, "Fólkið í kjallaranum", svo sem ágætlega leikið en einhvern veginn fannst mér
sagan og persónurnar óáhugaverðar.
Svo náðum við seinni hluta af hljómleikum Halla Reynis á Rosenberg, alltaf flottur, vel heppnaðir
hljómleikar.
|
|
17. september 2011
|
Athafnastjóri við nafngjöf Unnsteins Magna, sem er sonur Arnars og Unnar.
|
|
8-12. september 2011
|
IBC sýningin í Amsterdam - sjötta árið í röð. Alltaf fróðlegt og gaman að kíkja. Og fullt góðum félagsskap.
Toppurinn þegar Alli kom frá Osló og við náðum einu verulega góðu kvöldi.
|
|
20. ágúst 2011
|
Menningarnótt. Dagurinn fór aðeins fyrir lítið í undirbúning fyrir spilamennsku kvöldins. Við Fræbbblar
spiluðum með Halla Reynis og Ojba Rasta á bak við veitingastaðinn "Við Tjörnina". Sennilega slökustu
hljómleikar okkar í meira en ár, byrjuðu þó vel og sérstaklega vel heppnað að spila "A Message To You, Rudy"
með hálfri blásarasveit OjbaRasta og fá stuðning í "White Man In Hammersmith Palais".
|
|
13-14. ágúst 2011
|
Einifells ferð með Gout-On-Va. Náðum ekki að mæta fyrr en á laugardeginum, sem nýtist aldrei vel svona
hálfur. En maturinn alltaf í sama hágæða klassa, nýveiddur smálax sashimi, kartöflu ansjósu réttur, grillaður
humar, heimatilbúið pestópasta, grill steikar salat En framkvæmdir á Einifelli ganga ótrúlega vel, skil samt
ekki hvernig þau nenna þessu. Og ekki má gleyma að við Krissi og Elín unnum Petanque mótið.
|
|
31. júlí 2011
|
Tengdapabbi, Magnús Pálsson, sjötíu og fimm ára. Og auðvitað Sæmi, tvíburabróðir hans. Glæsileg veisla í
Austurbrún að hætti þeirra Sylvíu, gaman að hitta bræðurna, konur þeirra og Sæunni og Friðjóni. En nokkurð
margir fjölskyldumeðlimir á ferðalagi. Eiginlega alveg sérstaklega vel heppnað kvöld, sátum fram eftir nóttu.
En bestu fréttir dagsins sneru nú að heilsunni.
|
|
29. júní - 18. júlí 2011
|
Sumarfrí. Nýttum fáránlega góð tilboð og fórum í gott sumarfrí - tveir dagar í Amsterdam, tveir í Rotterdam,
níu dagar á siglingu frá Rotterdam til New York með viðkomu í Southampton. Og aukastopp í Boston á
heimleiðinni. Slatti af myndum hér, aðallega fyrir
okkur og lika fyrir okkar, nokkrar lifandi myndir hér. En ferðasagan í nokkrum smáatriðum Svo má finna eldri
hér.
|
|
25. - 26. júní 2011
|
Einifells heimsókn, Petanque, heitur pottur, frábær matur, spennandi vín, nóg af bjór.. sem sagt allt eins og
það á að vera á Einifelli. Og heljar framkvæmdir í gangi, ótrúleg seigla hjá Einifellsbúum.
|
|
1. júní 2011
|
Við Iðunn fórum á pöbbarölt með hinum finnska Jari Pekka Laito Ramone sem rekur umfangsmestu Ramones
vefsíðuna. Hann var að koma frá afmælis hátíð Joey Ramone þar sem hann hitti nokkra eftirlifandi meðlimi.
Gaman að hitta hann eftir 12 ára tölvupóstsamskipti og gaman að spjalla við hann. Enduðum á Dillon hjá Andreu
og komum ekki að tómum Ramones kofunum hjá henni.
|
|
7.-8. maí 2011
|
Postula uppskeruhátíð í Grímsborgum. Dagurinn byrjaði snemma, póker og bjór með brauði, hádegismatur í boði
Arnars, golf, fótbolti, matur, landakynningar, bjór, pottur, meiri póker, morgunmatur (smá svefn í
millitíðinni), meiri pottur, fótboltaáhorf, bjór, hringur... Frábær matur og morgunmatur í verulega flottu
umhverfi. Og ekki spillti vel undirbúin hátíð hjá Arnari.
|
|
6. maí 2011
|
Tuttugu og átta ára brúðkaupsafmæli. Fórum á Dill í Norræna húsinu. Virkilega flottur staður og skemmtileg
uppsetning. Man því miður ekki matseðilinn. Kíktum við á Ölstofunni á eftir.
|
|
13. apríl 2011
|
Þá er Agga systir orðin sextíu og fimm ára - hélt upp á með allsherjar matarboði á BanThai fyrir
stórfjölskylduna, kvöldið hefði mátt enda betur, en best að geyma fyrri hlutann frekar í minningunni.
|
|
1. apríl 2011
|
Strýhærði Pétur í Borgarleikhúsinu, skemmtileg sýning og mæli með. Vissum ekki fyrirfram um hvað sýningin var
- og í sjálfu sér ekki eftir hana heldur.
|
|
18-20. mars 2011
|
Sumarbústaða (eða gamals-bóndabæjar-) ferð í Neðri dal með Helga & Þóru, Bryndísi & Palla og Friðjóni
& Sæunni. Elda, éta, drekka, spila, liggja í heitum potti... ef ég tryði á endurholdgun þá væri ég
sannfærður um að hafa verið hafa verið Rómverji í fyrri tilvist. Nokkrar myndir...
|
|
19. febrúar 2011
|
Hljómsveitareldamennska hjá Auði & Steina. Nokkuð brottfall og endaði sem Íslandsdeild GoutOnVa í matnum
en Rikki kíkti með eftirrétt. En maturinn klikkaði ekki, kampavínsfordrykkur, kræklingur, humarpasta og
arabískur kjúklingaréttur - fyrir utan allt sem með fylgdi. Rifjuðum upp Sex Pistols myndbönd og svo nokkur
lög á hljóðfærin í húsinu.
|
|
11.-13. febrúar 2011
|
Helgarferð til London, alveg sérstaklega vel heppnuð. Fluginu út seinkaði vegna veðursins og við vorum ekki
komin fyrr en undir fimm, en náðum einum pöbb - einhvern veginn ein af þessum ógleymanlegu stundum. Svo á
hinn Belgíska Belgo í Covent Garden, mjög skemmtilegur staður með ágætis mat og verulega flottu úrvali af
bjór. Barinn á Hilton Park Lane seinna við kokteiladrykkju fram eftir nóttu. Laugardagurinn fór í
Arsenal-Wolves hjá okkur verri helmingunum, flottur leikur og frábær stemming þó ég hefði viljað sjá fleiri
mörk. Svo á Rules, sem er elsti veitingastaður í London... flott stemming og fínn matur, reikningurinn
óneitanlega hærri en á Belgo, en vel þess virði.
|
|
8. febrúar 2011
|
Orðinn spilastokksgamall. Iðunn bauð mér á Humarhúsið og alltaf jafn frábær maturinn hjá þeim. Fórum svo á
Rosenberg að hlusta á Halla Reynis með Öggu & Magg og Kidda & Gunnu. Flottir hljómleikar hjá honum
þrátt fyrir að veðrið héldi einhverjum gestanna frá.
|
|
22. janúar 2011
|
Flottur seinni dagur í uppskeruhátíð Postulanna. Byrjaði reyndar í GoKart sem sumir tóku sem
klessubílaakstur, mér amk. til lítillar gleði - enda kannski hvort sem er ekki að skilja þetta. En pílukast,
Ísland - Þýskaland og svo til Þórhalls.
|
|
3.-5. desember 2010
|
Einifells ferð, alltaf jafn gaman. Aðeins að skoða reykingarnar hjá húsráðendum, lambalæri, bjúgu, lax,
ostur, brauð og mandarínur. Svo var aðeins étið og drukkið, einn, tveir ostar, rauðvín, bjór, hvítvín,
freyðivín, heimabakað brauð með trufflu olíu, svo útigrillaður humar og nautalundir í kvöldmat. Tvær
pottferðir, ótrúlega tilkomumikil stjörnusýning með alvöru "stjörnuhrapi".
|
|
16. október 2010
|
Spiluðum á Airwaves á Amsterdam um hálfníu, gekk bara nokkuð vel, eiginlega þræl vel. Svo beint í
fertugsafmæli Sæunnar, flott veisla og það sem sem meira máli skiptir, skemmtilegt fólk.
|
|
25. september 2010
|
Breiðablik Íslandsmeistari í fótbolta. Loksins. Loksins. Flott lið stráka sem eru að mestu uppaldir og spila
skemmtilegan fótbolta.
|
|
4. - 6. ágúst 2010
|
Einifells heimsókn... myndir. Assi, Stína og
Ásta Lovísa komu með Svisslendinga í heimsókn sem töluðu ekki annað en frönsku. Nautasteik um og svo fram
undir morgun í heitum potti að spila tónlist og sötra gæðavín og bjóra. Golf á Einifells lóðinni á fimmtudag,
settum laxaflök í reyk og síðan hófst alvöru Petanque mót.
|
|
19. júlí - 1. ágúst 2010
|
Tveggja vikna ferð til Costa del Sol, vorum í íbúðinni sem Magnús og Sylvía eiga á Benalmadena. Stutt stopp í
London á heimleiðinni.
|
|
15. júlí 2010
|
Stórskemmtilegir hljómleikar á Sódómu, "Nei, við nauðgunum".
|
|
5. júní 2010
|
Tók að mér að vera afhafnastjóri við nafngjöf Hrafnkels Mána, sonar Alla og Drafnar. Mjög gaman og flott
veisla.
|
|
15.-16. maí 2010
|
Við Fræbbblar fórum til Húsavíkur til að spila á hljómleikum ásamt Morðingjunum og þremur frábærum
"innfæddum" hljómsveitum.
|
|
30. apríl 2010
|
Hljómleikar á Sódómu. Við Fræbbblar áttum sennilega okkar bestu hjómleika.
|
|
15.-17. janúar 2010
|
Sambindið fór ásamt eiginkonum í helgarferð á Skóga sem nokkurs konar sameiginlega fimmtugsafmælisgjöf frá
okkur til okkar.
|
|
3. október 2009
|
Mætti í upphitun fyrir bikarúrslitaleikinn við Fram, Fræbbblar spiluðu þrjú lög og skipti örugglega sköpum að
bikarinn vannst.
|
|
19. september 2009
|
Sýning opnaði í Kópavogi, "Heilbrigð æska, pönkið og Kópavogurinn".
|
|
7.-9. ágúst 2009
|
Fiskidagsferð, myndir hér. Sérstaklega gamana
að detta þarna inn þar sem bærinn heiðraði afa þetta árið.
|
|
25. maí - 8. júní 2009
|
Tveggja vikna frí, úrslitaleikurinn í meistaradeildinni í Róm með Magga og Dísu, flakk um suður Ítalíu á
Amalfi ströndinni og helgi í París á heimleiðinni með Krissa og Rúnu.
|
|
8. febrúar 2009
|
Afmælisveisla í gærkvöldi á Amsterdam, Fræbbblar spiluðu tvisvar... fjölskyldan mætti svo í auka afmæliskaffi
daginn eftir.
|
|
28. nóvember - 1. desember 2008
|
Ferð til Manchester með Öggu & Magga, Gunnu & Kidda, Halla & Steinunni og Írisi & Sigga.
|
|
9. nóvember 2008
|
Tók að mér að vera athafnastjóri við nafngjöf Öglu Margrétar, dóttur Brynju og Kalla.
|
|
4.-8. september 2008
|
GoutOnVa ferð til Luxemborgar, við Iðunn fórum með Assa og Stínu og Auði og Steina í heimsókn til Krissa og
Rúnu (og Salóme) í Luxemborg. Fullt af myndum hér.
|
|
29. apríl - 18. maí 2008
|
Silfurbrúðkaupsafmælisferðin okkar, London, Aþena, 12 daga sigling, Aþena og London. Stutt ferðasaga hér og slatti af myndum hér.
Eldri og ítarlegri fréttir hér
|
|
|